Leikfélag Hólmavíkur |
|||||||||||||||||||
Sumarið 1996 var komið á laggirnar kaffileikhúsi á Café Riis yfir sumartímann í tengslum við verkefnið Ferðaþjónusta og þjóðmenning á Ströndum. Þá var fluttur leikþáttur og menn drukku bjór eða kaffi með, eftir atvikum.
Þrír þættir voru á dagskrá fyrsta sumarið, Á sama bekk, Jóðlíf og Um skaðsemi áfengisins. Síðastnefndi þátturinn varð allra leikrita lífseigast, en Jóðlíf var sýnt 6 sinnum áður en leikmyndin var brennd á báli norður í Djúpavík árið 1997. Leikarar leikstýrðu hvor öðrum og gekk vel, öllum til mikillar furðu. Jóðlíf er skemmtilegur absúrd gamanleikur sem gerist í móðurkviði. Þar hírast tvíburabræður sem hafa býsna ólíkar skoðanir á lífinu og tilverunni. Það er afskaplega auðvelt að ruglast í texta leikritsins vegna margvíslegra endurtekninga, en uppsetningin var svo þaulæfð að það kom aldrei fyrir að leikararnir færu svo illilega út af sporinu að þeir fyndu það ekki aftur sjálfur. Leikararnir voru líka þaulvanir og náskyldir bræður.
Það þótti nokkur nýlunda í leikhúslífi, menningarstarfi og ferðaþjónustu að bræðurnir viku aldrei frá þeirri reglu sinni að fara á ærlegt fimmtudagsfyllerí með gestunum að sýningu lokinni. Bræðurnir hafa nokkrum sinnum reynt að æfa upp verkið aftur, en það hefur aldrei heppnast að koma því á koppinn. Einhverjir vilja meina að það sé af því að þeir komist ekki lengur í búningana, en það er argasta vitleysa.
- Okkur vantar myndir !!! - Höfundur: Oddur Björnsson Hvíslari: Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir og fleiri Leikarar
og persónur:
Sviðsmynd, búningar, ljós, leikskrá, leikstjórn og annað smálegt: Jón Jónsson og Arnar S. Jónsson Sýningar
(5): |
|||||||||||||||||||
Spakmæli verksins: „Ég heimta píanó. Og ég jóðla, júríjú ...“ |
|