Hér er ýmsu skemmtilegu sem tengist rækjum safnað í einn allsherjar rækjupoka.
Dansandi rækjurHreyfimynd af rækjum í suðrænni stemmingu... Rækjur á táknmáliTáknmál heyrnarlausra hefur að geyma skemmtilegt tákn fyrir
orðið rækja...
Rækjusmásögur Órækja5. og 6. bekkur hafa verið mikið í bókmenntum í vetur. Við gerðum unnum líka þemaverkefni um Snorra-Sögu hjá Kristínu umsjónarkennara og Hildi kennaranema. Snorri Sturluson átti frilluson sem hét Órækja og okkur datt hann í hug þegar við fórum að gera rækjuverkefnið. Er kannski órækja andheiti við RÆKJA? Rækjuteiknimynd
Rækjuteiknimynd
eftir nemendur úr 9. og 10. bekk Rækjur í kvikmyndumKennarinn sagði okkur frá kvikmyndinni Forrest Gump (sem við erum of ung til að muna eftir!). Forrest Gump verður í ríkur í lok myndarinnar á því að fara á rækjuveiðar með vini sínum. Við höldum samt að það sé ekki hægt að vera ríkur á rækjuveiðum núna því að það er búið að veiða of mikið. TónlistEina tónlistinn sem við fundum og tengist rækjum er Rækjureggae sem Egó gerði frægt. Textinn hefur þó ekkert með rækjur að gera og er tæplega við hæfi ungra barna. Lagið má eflaust nálgast á tónlist.is og þar eru eflaust líka ýmis sjómanna og og verkamannalög sem minna á stemmingu til sjós og lands. Rækjureggae
|
|