Leikfélag Hólmavíkur |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
|
Sumarið 2000 var fyrsti áfangi Galdrasýningar á Ströndum opnaður á Hólmavík, á aðfaranótt Jónsmessunnar. Af því tilefni æfði Leikfélag Hólmavíkur hluta af hinu mikla og magnþrungna verki Skollaleik og sýndi á útisviði við opnun sýningarinnar. Hafði sýningin titilinn: Er það einleikið? Sýningin var sett upp á útisviði framan við Hótel Matthildi og tókst frumsýningin afbragðs vel. Síðar um sumarið var aftur sýnt og þá á Café Riis. Margir lögðu hönd á plóg við uppsetningu sýningarinnar.
Höfundur: Böðvar Guðmundsson Leikgerð: Arnlín Óladóttir, Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir og Salbjörg Engilbertsdóttir Leikstjórn: Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir, Salbjörg Engilbertsdóttir Persónur
og leikendur:
Sýningar: Hólmavík
(á útisviði) - 23. júní
|
||||||||||||||||||||||||||||||||
Spakmæli verksins: „Er það einleikið?“ |
|